Þarftu pláss til að blómstra?

Ljósmynd: Andrés Rein Baldursson, 2022.
Ljósmynd: Andrés Rein Baldursson, 2022.

Laus eru til umsóknar tvö pláss hjá AkureyrarAkademíunni án endurgjalds með stuðningi frá Akureyrarbæ. Um er að ræða góða aðstöðu til að vinna að nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefnum í skapandi umhverfi.

Vinnuaðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, Sunnuhlíð 12, og er hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar er sex mánuðir frá 1. mars til 31. ágúst. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Verklagsreglur um stuðninginn má finna hér.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar nk.
Nánari upplýsingar er að fá hjá AkureyrarAkademíunni í síma 833 9861 og á netfanginu akak@akak.is.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan