Taktu þér far með Fjarkanum

Stólalyftan Fjarkinn í Hlíðarfjalli var ræst í síðustu viku og verður látin ganga til 30. ágúst í sumar. 

Hægt er að taka hjólið með sér í lyftuna og gangandi geta tekið lyftuna bæði upp og niður og þá fyrir sama verð.

Fjórar hjólabrautir eru í fjallinu í umsjá Hjólreiðafélags Akureyrar; Suðurgil, Andrés, Hjalteyrin og Ævintýraleið. Einnig eru tvær leiðir frá gönguhúsi og ein frá lyftuskúr við Fjarkann en þessar þrjár liggja allar yfir í Glerárdal.

Fyrir þá sem eru gangandi er tilvalið að stoppa við Strýtuskála og njóta útsýnis yfir Akureyrarbæ og Eyjafjörð.

Frá Strýtuskála er svo merkt gönguleið upp á brún Hlíðarfjalls. Þegar þangað er komið er til dæmis hægt að ganga að Harðarvörðu, Blátindi, Bungu, Strýtu, Kistu eða á Vindheimajökul. Á góðviðrisdögum má á þessum slóðum sjá yfir í Mývatnssveit, Herðubreið eða vestur í Skagafjörð svo eitthvað sé nefnt.

Því miður er ekki tekið við Ferðaávísun ríkisstjórnarinnar þar sem starfsemin hér fellur ekki í þann flokk.

Opnunartímar Verðskrá Fullorðnir Börn/ellilífeyrisþegar
Fimmtudagar frá kl. 17 - 21 Ein ferð 1.100 600
Föstudagar frá kl. 16 - 20 Einn dagur 4.300 1.600
Laugardagar frá kl. 10 - 18 Helgarpassi 10.600 3.900
Sunnudagar frá kl. 10 - 16 Sumarkort 26.400 13.300
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan