Sund og skíði í vetrarfríi grunnskólanna

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum með lögheimili á Akureyri í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna.

Fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar og sundlaugar Akureyrar án endurgjalds.

Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar í VMA, MA og MTR sem hafa lögheimili á Akureyri framvísa nemendaskírteinum.

Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.100 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls og á N1.

Góða skemmtun!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan