Styrkir veittir úr listsjóðnum Verðandi í fyrsta sinn

Fremri röð frá hægri: Ellý Vala Ármannsdóttir, Margrét Árnadóttir, Helga Kvam, Tinna Björg Traustadó…
Fremri röð frá hægri: Ellý Vala Ármannsdóttir, Margrét Árnadóttir, Helga Kvam, Tinna Björg Traustadóttir, Jón Þorsteinn Reynisson, Jenný Lára Arnórsdóttir, Kristín Sóley Björnsdóttir, Hulda Sif Hermannsdóttir. Efri röð frá hægri: Ásthildur Sturludóttir, Jón Pálmi Óskarsson, Heimir Haraldsson, Unnar Jónsson, Þorleifur Stefán Björnsson, Rafnar Orri Gunnarsson, Helgi Svavarsson.

Veittir voru styrkir í fyrsta sinn úr listsjóðnum Verðandi í Menningarhúsinu Hofi í gær. Sextán umsóknir bárust sjóðnum og tíu verkefni fengu brautargengi á þessu fyrsta úthlutunartímabili sem er 4. janúar til 31. júlí í ár.

Styrkþegarnir tíu munu standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í Menningarhúsinu Hofi á þessum tímabili, sem dæmi má nefna tónleika með Piazolla kvintett, dansgjörning með frumsaminni tónlist, kórtónleika, útgáfutónleika, hátíðardagskrá til heiðurs Elísabetu Maríu, jasstónleika, klassíska tónleika og popptónleika, ásamt bíótónleikum með lúðrasveit.

Listsjóðurinn Verðandi varð til formlega 15. nóvember á síðasta ári þegar Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Þórleifur Stefán Björnsson, formaður stjórnar Menningarfélagsins Hofs, og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, undirrituðu samkomulag um stofnun hans. Akureyrarbær leggur sjóðnum til 4,2 m.kr. árlega næstu þrjú árin og Menningarfélagið Hof sem áður rak menningarhúsið leggur til um 1 m.kr. en Menningarfélag Akureyrar leggur til vinnu við afgreiðslu umsókna.

Megintilgangur sjóðsins er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof og Samkomuhúsið sem vettvang fyrir listsköpun sína. Listsjóðurinn á að auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem húsakynni Menningarfélags Akureyrar bjóða upp á, auk þess að stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum og nýta þá möguleika sem þar eru fyrir fjölbreytta viðburði.

"Það var afar ánægjulegt að fá svo fjölbreyttar umsóknir, sjá metnað listafólksins og vilja til að nýta sér aðstöðuna í menningarhúsinu Hofi fyrir þeirra flottu og krefjandi viðburði. Við starfsfólk Menningarfélagsins hlökkum til að taka á móti þeim í hús. Þesir viðburðir munu án efa bæta litum í annars litríkt og fjölbreytt listalíf hér á Akureyri og vonandi verða mörgum til gleði og stuðnings til að láta drauma sína rætast," segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélas Akureyrar.

Auglýst verður aftur eftir umsóknum í Listjóðinn Verðandi í mars næstkomandi fyrir tímabilið 1. ágúst 2019 til loka júlí 2020.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan