Stóra upplestrarkeppnin á Akureyri

Sigurvegarar dagsins. Frá vinstri: Salka Sverrisdóttir úr Naustaskóla 1. sæti, Arnfríður Kría Jóhann…
Sigurvegarar dagsins. Frá vinstri: Salka Sverrisdóttir úr Naustaskóla 1. sæti, Arnfríður Kría Jóhannsdóttir úr Brekkuskóla 3. sæti og Sara Mjöll Jóhannsdóttir úr Lundarskóla 2. sæti.

Miðvikudaginn 7. mars fór Stóra upplestrarkeppnin fram í Kvosinni, Menntaskólanum á Akureyri í 18. sinn. Það eru nemendur 7. bekkja grunnskóla bæjarins sem taka þátt í keppninni ár hvert. Upphafsdagur Stóru upplestrarkeppninnar er á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Fram að lokakeppni leggja nemendur og kennarar áherslu á að æfa upplestur, vanda framburð og huga vel að áherslum, túlkun og framkomu í ræðustóli.

Að venju voru nemendur sér og skólum sínum til mikils sóma þennan dag og dómarar hafa ekki verið öfundsverðir af því hlutskipti sínu að velja einn fremur öðrum í verðlaunasæti. Eins og áður var það Ingibjörg Einarsdóttir sem var formaður dómnefndar en hún er einn af upphafsmönnum keppninnar sem fór fyrst fram í Hafnarfirði fyrir tuttugu og tveimur árum.

Ómissandi þáttur þessarar hátíðlegu stundar er tónlistarflutningur nemenda Tónlistarskólans á Akureyri en samspilshópur úr skólanum lék m.a. stef úr Stjörnustríði eftir John Williams.

Ástæða er til að þakka öllum upplesurum, tónlistarflytjendum og kennurum þeirra fyrir frábæran undirbúning og æfingar sem skiluðu sér í vönduðum og góðum flutningi fyrir fullum sali áhorfenda.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan