Starfsmenn Þrastarlundar heiðraðir

Á myndinni eru talið frá vinstri: Kristinn Már Torfason forstöðumaður, Guðmundur Karlsson, Tómas Jóh…
Á myndinni eru talið frá vinstri: Kristinn Már Torfason forstöðumaður, Guðmundur Karlsson, Tómas Jóhannesson, Gísli Andrésson, Stefán Guðlaugsson, Erlingur Guðmundsson, Torfi Ólafsson, Gestur Guðrúnarson og Arne Friðrik Karlsson.

Á dögunum var efnt til fagnaðar í þjónustukjarnanum Þrastarlundi þar sem starfsmenn voru heiðraðir fyrir vel unnin störf og langan starfsaldur.

Athygli hefur vakið að margir starfsmenn staðarins hafa haldið tryggð við hann og starfið og það ber að þakka. Í jafn viðkvæmum málum og þjónusta okkar við íbúana er þá hefur reynsla góðra starfsmanna verið það sem hefur reynst best til að auka lífsgæði íbúanna.

Lengstan starfaldur almennra starfsmanna hefur Stefán Guðlaugsson en hann hefur starfað með fötluðum í meira en 30 ár. Fjórir starfsmenn hafa starfað í meira en tuttugu ár en það eru Gísli Andrésson, Torfi Ólafsson, Guðmundur Karlsson og Erlingur Guðmundsson. Í meira en 10 ár hafa svo starfað Tómas Jóhannesson, Gestur Guðrúnarson og Lúðvík Trausti Lúðvíksson. Sérstaklega var heiðraður Arne Friðrik Karlsson fyrir starf sitt við uppbygginu starfseminnar í tæp 20 ár en hann starfar nú sem leiðandi forstöðumaður hjá Velferðarsviði Reykjavíkur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan