Starfsmaður í Lundarskóla með Covid-19

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Covid-19 smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni í Lundarskóla við Dalsbraut.

Að kröfu sóttvarnalæknis og til að gæta fyllsta öryggis þurfa nemendur í 1.-6. bekk að vera heima meðan á smitrakningu stendur eða að öllu óbreyttu til fimmtudagsins 1. október nk. Lundarskóli við Dalsbraut verður því lokaður næstu daga.

Starfsmaðurinn sem um ræðir hafði ekki verið í snertingu eða samskiptum við nemendur frá því hann var útsettur fyrir smiti og því er hér fyrst og fremst um varúðarráðstöfun að ræða.

Skólastarf 7.-10. bekkjar Lundarskóla, sem fer fram í Rósenborg, raskast ekki og heldur áfram óbreytt.

Munum að við erum öll almannavarnir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan