Starfsfólk PBI í sumarleyfi

Kerti eru meðal þess sem framleitt er hjá PBI.
Kerti eru meðal þess sem framleitt er hjá PBI.

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur verður lokuð frá 12. júlí vegna sumarleyfa starfsfólks.

Starfsemin hefst aftur af fullum krafti eftir verslunarmannahelgi eða þriðjudaginn 3. ágúst.

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur er vinnustaður fyrir fólk sem vegna fötlunar eða af öðrum ástæðum er með skerta starfsgetu. Þar eru meðal annars framleidd kerti, búfjármerki og alls kyns raflagnaefni.

Verslun PBI er að Furuvöllum 1 og þar er opið alla virka daga en verður sem áður segir lokað vegna sumarleyfa frá 12. júlí til 3. ágúst.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan