Leikskólinn Kiðagil er meðal þeirra skóla sem auglýsa eftir starfsmanni. Ljósmynd: Bjarki Brynjólfsson.
Akureyrarbær auglýsir laus til umsóknar fjölbreytt störf í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins.
Skólastarf er að hefjast að nýju eftir sumarfrí og eru spennandi tækifæri í boði fyrir fólk sem vill bætast í hóp framúrskarandi starfsmanna í skólunum okkar.
Sérkennari í leikskólanum Klöppum, leikskólakennari í Naustatjörn, matreiðslumaður í Glerárskóla og leikskólakennari í Hríseyjarskóla eru meðal þeirra starfa sem eru laus til umsóknar.
Smelltu hér til að skoða laus störf hjá Akureyrarbæ.