Sorphirðu frestað vegna ófærðar

Terra neyðist til að fresta sorphirðu vegna ófærðar. Snjó hefur kyngt niður síðustu daga og kemst bíllinn illa leiðar sinnar um íbúðargötur, auk þess sem tunnur eru víða á kafi. 

Unnið er að snjómokstri af fullum krafti og hefst sorphirða að nýju eins fljótt og auðið er. 

Íbúar eru beðnir um að hreinsa leið að ílátum. 

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan