Smit í Síðuskóla

Mynd af Facebook-síðu Síðuskóla.
Mynd af Facebook-síðu Síðuskóla.

Starfsmaður í frístund í Síðuskóla hefur greinst með Covid-19. Viðkomandi fékk einkenni um liðna helgi og var smitið staðfest í gær.

Starfsmenn frístundar sem unnu með viðkomandi á fimmtudag og föstudag í síðustu viku og börn sem voru í frístund þá daga hafa verið send heim í úrvinnslusóttkví. Af þessum ástæðum verður frístund í Síðuskóla lokuð út vikuna.

Starfsfólk, nemendur og foreldrar þeirra eru beðnir að fylgjast vel með því hvort fram komi einkenni sjúkdómsins og er bent á að hafa samband við heilsugæsluna ef grunur vaknar um smit.

Enn er óupplýst hver uppruni smitsins er en smitrakning er hafin.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan