Slysavarnadeildin á Akureyri afhendir hjartastuðtæki

Slysavarnadeildin á Akureyri hefur afhent tvö hjartastuðtæki sem safnað var fyrir á Friðarvökunni á Akureyrarvöku en félagið lagði einnig fjármuni til kaupanna. Eins og um var rætt eru tækin staðsett á fjölförnum stöðum. Annað tækið er í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem það gagnast bæjarbúum og gestum en þar eru haldnir ýmsir fjölmennir viðburðir s.s. árshátíðir Akureyrarbæjar og Sjúkrahússins á Akureyri,  útskriftarhátíðir MA stúdenta og júbilanta auk fjölmennra íþróttaviðburðanna svo eitthvað sé nefnt. Að sögn Aðalsteins Sigurgeirssonar forstöðumanns Íþróttahallarinnar sem veitti tækjunum viðtöku heimsækja á bilinu  þrjú til fjögurhundruð þúsund gestir húsið ár hvert. Hitt tækið er staðsett í húsakynnum Glerárlaugar og gagnast þar sundlaugargestum en einnig verður hægt að nýta það í Íþróttahúsi Glerárskóla ef þörf krefur. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan