Skíðavertíðin fer vel af stað

Fyrstu gestir vetrarins bíða eftir að fara upp með Fjarkanum. Frá vinstri: Tómas, Stefán, Agata og F…
Fyrstu gestir vetrarins bíða eftir að fara upp með Fjarkanum. Frá vinstri: Tómas, Stefán, Agata og Fríða.

Fyrsti skíðadagurinn í Hlíðarfjalli var sunnudaginn 3. desember þegar hátt í 300 manns renndu sér í góðu færi. Næstu vikur verður opið frá fimmtudegi til sunnudags. Lokað verður á aðfangadag en opnað aftur á jóladag og eftir það opið daglega ef aðstæður leyfa.

Sala vetrarkorta hefur gengið mjög vel og snjóframleiðsla er hafin en hefur verið ofurlítið brokkgeng því það þarf 4 gráðu frost til að vélarnar geti breytt vatni í snjó. Það er hörkugaddur í kortunum og þá verða snjóbyssurnar látnar ganga viðstöðulaust.

Nánari upplýsingar um opnunartíma í Hlíðarfjalli.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan