Skarðshlíð 20 - Breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Melgerðisás og Skarðshlíð.

Skipulagssvæðið afmarkast af lóðinni Skarðshlíð 20 og gerir tillagan ráð fyrir að á lóðinni rísi eitt fjölbýlishús á þremur til fimm hæðum í vinkilbyggingu ásamt bílakjallara.

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér og hér (sól- og vindstúdía).

Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 25. janúar - 13. mars 2023. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 13. mars 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan