Skapandi vettvangur ungs fólks

Þátttakendur á Húsavík
Þátttakendur á Húsavík

Hver eru stærstu vandamál heimsins, landsins og sveitarfélagsins? Og hvernig er hægt að nota heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til að efla sína heimabyggð? Þetta eru dæmi um spurningar sem ungmenni og starfsfólk ellefu sveitarfélaga ræddi á fyrsta viðburðinum undir yfirskriftinni „Ungt fólk á Norðurlandi eystra“.

Mikilvægar og valdeflandi umræður

Verkefnið hlaut styrk í tengslum við sóknaráætlun landshlutans, en markmiðið er að skapa vettvang fyrir ungt fólk á svæðinu frá Fjallabyggð til Langanesbyggðar til að ræða sameiginleg hagsmunamál og kynnast lífi hvers annars. Einnig er vonast til þess að með verkefninu skapist samheldni, tengslanet, mikilvægar umræður og valdefling ungs fólks. Akureyrarbær fer með verkefnastjórn.

Á dögunum var haldinn fyrsti sameiginlegi viðburðurinn á Húsavík og þangað mættu fjórir fulltrúar frá hverju sveitarfélagi, þrjú ungmenni og einn starfsmaður. Þátttakendur voru tæplega 40 talsins og var kynjahlutfallið jafnt. Ákveðið var að þessi fyrsti viðburður yrði með þjóðfundarsniði og með áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Áhugaverðar umræður sköpuðust á fundinum um samfélög, ungt fólk og heimsmarkmiðin en hver hópur kom svo með hugmynd að næsta viðburði.

Landsmót SSNE - skemmtun og fræðsla

Tilllagan sem var valin ber heitið Landsmót SSNE og felur í sér helgi þar sem ungmenni koma saman, gista í skóla og gera skemmtilega hluti eins að bjóða upp á pizzaveislu, ísferð, bíó eða sund en vinna jafnframt verkefni og fræðast enn frekar um heimsmarkmiðin. Meðal verkefna á dagskránni er matreiðslukennsla úr íslensku hráefni, nýsköpunarleikir í tengslum við aðgerðir í loftslagsmálum og fræðsla um hvert ruslið okkar fer. Einnig var lagt til að hafa fræðslu um snjalltækjanotkun sem snýr að heimsmarkmiði um heilsu og vellíðan og þá vilja ungmenni planta trjám saman og jafnvel heimsækja fyrirtæki og fræðast um hvernig þau vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Landsmótið, sem á að vera skemmtilegt og skapandi, verður haldið á vordögum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan