Silja Dögg og Gunnar í viðtalstíma

Viðtalstímar bæjarfulltrúa Akureyrarbæjar eru haldnir tvisvar í mánuði á fimmtudögum frá kl. 17-19 á tímabilinu október til maí.

Í viðtalstímum gefst bæjarbúum kostur á að hitta fulltrúa í bæjarstjórn og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Viðtalstímarnir eru í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, 1. hæð.

Fimmtudaginn 14. desember verða bæjarfulltrúarnir Silja Dögg Baldursdóttir og Gunnar Gíslason í Ráðhúsinu til skrafs og ráðagerða.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan