Sigurhæðir vakna til lífs á ný

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Kristín Þóra Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Fló…
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Kristín Þóra Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Flóru menningarhúss, undirrituðu samninginn á Sigurhæðum í gær.

Í gær var undirritaður samningur Akureyrarbæjar og Flóru menningarhúss ehf. um leigu á Sigurhæðum til næstu fjögurra ára frá og með 1. júlí nk. Á samningstímanum verða Sigurhæðir nýttar undir margvíslega menningarstarfsemi og viðburðahald.

Á aðalhæð Sigurhæða verður Flóra menningarhús með starfsemi opna almenningi. Þar verður árlega sett upp innsetning í samvinnu við listafólk, hönnuði og safnafólk í tengslum við Matthías Jochumsson og Guðrúnu Runólfsdóttur, þeirra fólk, verk og þá tíma sem þau lifðu.

Eins verða þar hýstir aðrir viðburðir og sýningar, en rýmin verða líka nýtt til miðlunar og sölu á munum. Fólki gefst kostur á að nýta þá aðstöðu fyrir smærri fundi, kynningar, námskeið og annað í þeim dúr og eins fyrir móttöku smærri hópa, til að mynda úr skólum bæjarins.

Á efri hæð og í kjallara verður í góðum anda starfrækt vinnuaðstaða fyrir skapandi fólk, listamenn og frumkvöðla, fyrst og fremst fólk sem vinnur með texta í ólíkum greinum. Starfsemi í vinnustofunum hefst strax í júlí og eins verða nokkrir minni viðburðir á aðalhæðinni í sumar og haust, en eiginleg starfsemi á aðalhæð hefst frá og með vorinu 2022.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan