Síðuskóli – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Tillaga
Tillaga

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.  123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Síðuskóla.
Svæðið sem breytingum tekur nær til innkeyrslu og bílastæða við Síðuskóla. Tillagan gerir
m.a. ráð fyrir að innkeyrsla inn á skólalóðina færist norðar og gerður verður snúningshringur
með sjö sleppistæðum.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 16. ágúst til 27. september 2017, svo að þeir
sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengilega hérna fyrir neðan.

Síðuskóli, innkeyrsla, tillaga að deiliskipulagsbreytingu
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 27.
september 2017 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is)
þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
16. ágúst 2016
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan