Síðuskóli fær Grænfánann í áttunda sinn

Nemendur og starfsfólk Síðuskóla höfðu ástæðu til að fagna í gær - Grænfáninn dreginn að húni í áttu…
Nemendur og starfsfólk Síðuskóla höfðu ástæðu til að fagna í gær - Grænfáninn dreginn að húni í áttunda sinn.

Í gær var hátíðisdagur í Síðuskóla þegar Grænfáninn var dreginn að húni í áttunda sinn. 

Skólar á grænni grein er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi. Markmið Grænfánaverkefnisins er að auka umhverfismennt, sjálfbærni og styrkja umhverfisstefnur skóla. Meirihluti leikskóla Akureyrarbæjar og nokkrir grunnskólar taka þátt og hafa gert um nokkurt skeið. 

Síðuskóli hefur verið Grænfánaskóli frá árinu 2006 og í fyrravor var stefnan að fá fánann í áttunda sinn en vegna samkomutakmarkana var ákveðið að fresta því. Það var því kærkomin stund í gær þegar Guðrún Schmidt fulltrúi Landverndar afhenti viðurkenninguna og var ákveðið að blása til hátíðar utandyra í sumarblíðu. 

Þema skólans fyrir umsókn um fánann var lýðheilsa. Heildarútkoma úttektarinnar er eftirfarandi:

Síðuskóli var með víðtæk markmið í tengslum við lýðheilsu og úrgang og fann fjölbreyttar leiðir til þess að vinna að þeim. Starfsfólk í grænfánanefnd og verkefnastjóri eru áhugasöm og kraftmikil og greinilegt að verkefnið nær að valdefla nemendur. Í Síðuskóla er unnið flott starf í menntun til sjálfbærni og hvetjum við ykkur til áframhaldandi góðra verka. Þið hafið náð þeim góða árangri að fá grænfánann afhentan í 8. sinn. Innilega til hamingju með það!

Hér er hægt að skoða myndir frá Grænfánahátíðinni í Síðuskóla í gær. 

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan