Samþykktar skipulagstillögur

Breyting á deiliskipulagi spennistöðvar við Þingvallastræti.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 23. september 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir spennistöðina við Þingvallastræti.
Breytingin felur í sér að 6 metra mastur verði sett ofan á spennistöðina við Þingvallastræti.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 9. desember 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Margrétarhaga og Mattíasarhaga.
Breytingin felur í sér hækkun nýtingarhlutfalla og stækkun byggingarreita til vesturs um 3 metra fyrir lóðir nr. 11, 13, 15 og 17 við Margrétarhaga og lóðir 7, 9, 11 og 13 við Mattíasarhaga.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarbæjar, 4. febrúar 2021,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 22. febrúar 2021

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan