Samþykkt skipulagstillaga - Hesthúsahverfið í Breiðholti

Breyting á deiliskipulagi – Hesthúsahverfið í Breiðholti
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 2. febrúar 2021 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hesthúsahverfi í Breiðholti.
Breytingin felur í sér að á sameiginlegu svæði á lóð nr. 6 við Breiðholtsveg verði yfirbyggt reið­gerði. Reiðgerðið er um 18 m í þvermál, vegghæð u.þ.b. 3 m og mesta hæð um 5,5 m. Kerru­stæði á svæðinu er minnkað sem nemur 4 stæðum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarbæjar, 15. mars 2021,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 29. mars 2021

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan