Samgöngur í fjarveru Sæfara

Grímseyjarferjan Sæfari fer í slipp vegna viðhalds í næstu viku og er síðasta ferð til og frá eyjunni í dag, föstudaginn 17. mars.

Líklegt er að viðgerðir taki 6-8 vikur og því verður ekki hægt að ferðast með ferjunni á ný fyrr en í maí. Á því tímabili mun fiskiskipið Þorleifur sinna afurða- og vöruflutningum til og frá eynni fjórum sinnum í viku.
Farþegaflutningum verður hins vegar sinnt með áætlunarflugi og verður flugferðum fjölgað úr þremur í fjórar á viku. Hægt verður að ferðast á þriðjudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Í Grímsey er stoppað frá u.þ.b. 20 mínútum og upp í 2 klukkustundir allt eftir dögum. Flugið kostar frá 22.500 kr. fram og til baka.

Flugið er á vegum flugfélagsins Norlandair og flogið er frá Akureyrarflugvelli. Nánari upplýsingar má finna á vef flugfélagsins, sjá www.norlandair.is.

Bóka flug

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan