Ritlistasmiðja og ritlistakeppni

Frá ritlistasmiðjunni um síðustu helgi.
Frá ritlistasmiðjunni um síðustu helgi.

Um 30 ungmenni á aldrinum 16-25 ára sóttu ritlistasmiðjuna Ungskáld í VMA um síðustu helgi. Mjög góður rómur var gerður að leiðsögn Guðrúnar Evu Mínervudóttur og Snæbjörns Ragnarssonar, Bibba í Skálmöld.

Í framhaldi af ritlistasmiðjunni er nú efnt til ritlistakeppni sem er opin öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Það er alls ekkert skilyrði að hafa tekið þátt í ritlistasmiðjunni þótt vonir standi til að þátttaka þar komi að góðum notum. Í ritlistakeppninni verða veitt peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að sjálfsögðu að vera á íslensku. Skilafrestur á innsendum verkum er til og með 16. nóvember sem er dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Þátttakendur senda skrif sín á netfangið ungskald@akureyri.is

Tilkynnt verður um sigurvegara í keppninni við sérstaka athöfn á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 6. desember nk.

Markmiðið með verkefninu er að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára því að kostnaðarlausu. Verkefnið Ungskáld hefur verið við lýði á Akureyri í nokkur ár og er það eina sinnar tegundar á landinu. Að verkefninu standa Akureyrarstofa, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og Amtbókasafnið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan