Rangárvellir – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið afmarkast af skógræktar- og landgræðslusvæði og óbyggðu svæði til norðurs, austurs og suðurs, til vesturs og suðurs af lóð nr. 3 liggur lóð nr. 1 við Rangárvelli. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingarreitur er skilgreindur á lóð nr. 3 við Rangárvelli, lóð nr. 6 er felld út og ítarlegri skilmálar eru settir fyrir lóðir 3 og 4.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar, frá 21. ágúst til 2. október 2019, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Einnig er hægt að skoða tillöguna hér.


Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 2. október 2019 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

21. ágúst 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan