Breyttar ferðavenjur: Ráðstefna í Hofi

Nú stendur yfir Evrópska samgönguvikan og af því tilefni hefur Akureyrarbær í samstarfi við Vistorku skipulagt ýmsa viðburði en samgönguvikunni lýkur formlega með bíllausa deginum fimmtudaginn 22. september.

Miðvikudaginn 21. september kl. 14 verður vegleg ráðstefna haldin í Hofi þar sem flutt verða nokkur erindi um göngu- og hjólastíga á Akureyri, Reykjavík, Danmörku og Hollandi. Við fáum einnig tvær stuttar reynslusögur; Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðustofu Íslands, segir frá reynslu sinni af því að nota svokallað rafmagns Cargo-hjól og síðan mun Edward H. Huijbens prófessor við háskólann í Wageningen í Hollandi og fyrrum bæjarfulltrúi á Akureyri segja frá sinni reynslu af því að hjóla á Akureyri og í Hollandi.

Dagskrá:

  • Stígar við þjóðvegina: Rúna Ásmundsdóttir og Margrét Silja Þorkelsdóttir
  • Rafmagns Cargo-hjól: Elín Björk Jónasdóttir
  • Stígar í Hollandi og Danmörku í samanburði við Ísland: Thijs Kreukels og Lilja G. Karlsdóttir
  • Að hjóla í Hollandi og á Íslandi: Edward H. Huijbens
  • Göngu- og hjólastígakerfi Akureyrar: Pétur Ingi Haraldsson og Rut Jónsdóttir

Fundarstjórn annast Þórgnýr Dýrfjörð.

Ráðstefnunni verður streymt á netinu HÉR.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan