Síðasti dagur ráðgefandi íbúakosningar um Oddeyri

Í dag, mánudag, er síðasti séns til að taka þátt í ráðgefandi íbúakosningu um aðalskipulag Oddeyrar. Lokað verður fyrir könnunina í þjónustugáttinni á miðnætti.

Mikilvægt er að sem flestir kjósi þannig að niðurstaðan endurspegli sem best hug og vilja íbúa gagnvart uppbyggingu á svæðinu. Fólk er hvatt til að nýta tækifærið, skrá sig inn í þjónustugáttina og taka þátt. Það er í senn einfalt og fljótlegt.

Valið stendur á milli þriggja kosta sem fela í sér mismunandi hámarkshæð bygginga, en auk þess er hægt að taka þátt án þess að taka afstöðu með því að merkja við fjórða kostinn. Hver og einn íbúi, 18 ára og eldri, með lögheimili í sveitarfélaginu hefur eitt atkvæði.

Nú í morgun höfðu 3.146 íbúar tekið þátt. Samkvæmt Þjóðskrá uppfylla tæplega 14.800 skilyrði til þátttöku og hafa því um 21% þeirra greitt atkvæði.

Smelltu hér til fara í þjónustugáttina.

Smelltu hér til að skoða vefsvæði með helstu upplýsingum um málið.

  

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan