Opnað í Hlíðarfjalli

Nýr og fullkominn snjótroðari hefur verið tekinn í notkun á skíðasvæðinu.
Nýr og fullkominn snjótroðari hefur verið tekinn í notkun á skíðasvæðinu.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 16 í dag og verður opið til kl. 19.

Lyfturnar sem verða ræstar eru Fjarkinn, Hólabraut og Töfrateppið. Skíðaleiðir sem hafa verið troðnar eru Suðurgil, Hólabraut, Rennslið, Hólabraut niðri og að sjálfsögðu Töfrateppið. Athugið að nú er ókeypis í Hólabrautina.

Veðurútlitið er gott og mikil snjókoma í kortunum.

Frekari upplýsingar um opnun eru að finna hér: https://www.hlidarfjall.is/is/opnunartimi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan