Framkvæmdaáætlun um stefnu Íslands í málefnum Norðurslóða

Á fimmtudaginn kl 8.30-16 verður framkvæmdaáætlun um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða rædd á opnum fundi sem fer fram í Háskólanum á Akureyri og á fjarfundi. Fundurinn er haldinn af utanríkisráðuneytinu og Norðurslóðarneti Íslands. Áhugafólk um norðurslóðamál er hvatt til þess að taka þátt og fer skráning fram hér

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

  • 08:30 – 09:00 Skráning og morgunkaffi
  • 09:00 – 09:10 Opnunarávarp: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra
  • 09:10 – 09:20 Ávarp: Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður Arctic Mayors' Forum
  • 09:20 – 09:35 Pétur Ásgeirsson sendiherra Íslands í málefnum norðurslóða: Kynning á stefnu Íslands í málefnum norðurslóða
  • 09:35 – 09:50 Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu norðurslóða: Starf Íslandsdeildarinnar og þingmannaráðstefnunnar
  • 09:50 – 10:05 Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands: Kynning á verkefninu, verkáætlun, tímaáætlun og þemahópum
  • 10:05 – 10:30 Kaffihlé
  • 10:30 – 12:00 Pallborð: umræður og kynning á þemahópum um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða
  • A. Alþjóðlegt samstarf og skuldbindingar; B. Loftslagsbreytingar, vistkerfi og mengunarvarnir; C. Samfélag og innviðir; D. Uppbygging og framlag til málefna norðurslóða; E. Leit og björgun, fjarskipti, björgunarklasi
  • 12:00 – 13:00 Hádegisverður
  • 13:00 – 13:20 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti 
  • 13:20 – 13:35 Heiðar Guðjónsson, formaður Norðurslóðaviðskiptaráðs Íslands: Norðurslóðaviðskiptaráðið
  • 13:35 – 14:50 Hugarflug um aðgerðir og forgangsröðun
  • 14:50 – 15:20 Kaffihlé
  • 15:20 – 15:30 Samantekt, Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands
  • 15:30 – 16:00 Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs norðurslóða, fv. forseti Íslands: Ísland á norðurslóðum, framtíðarsýn

Fundarstjóri: Sigríður Huld Blöndal, sérfræðingur, utanríkisráðuneyti

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan