Félagsmiðstöð eldri borgara í Bugðusíðu 1
Félag eldri borgara á Akureyri (EBAK) og Öldungaráð Akureyrarbæjar boða til opins fundar mánudaginn 30. apríl nk. kl. 14:00 – 15:30 í félagsmiðstöðinni, Bugðusíðu 1.
Til umræðu: Nýsköpun og velferðartækni í öldrunarþjónustu hjá Akureyrarbæ. Framsögu hafa Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar og Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs Akureyrarbæjar.
Eru félagsmenn EBAK og aðrir eldri borgarar sérstaklega hvattir til að mæta. Allir velkomnir.