Opið lengur á sumrin

Sjónvarpsskjárinn við nýju heitu pottana.
Sjónvarpsskjárinn við nýju heitu pottana.

Afgreiðslutími Sundlaugarinnar á Akureyri hefur nú verið lengdur þannig að í sumar verður opið til kl. 21 á laugardagskvöldum og 19.30 á sunnudagskvöldum.

Elín H. Gísladóttir forstöðumaður sundlaugarinnar segir að eftir að nýju vatnsrennibrautirnar hafi verið teknar í notkun hafi aðsókn aukist töluvert og stundum verið fullmargt í lauginni í einu. Það var sérstaklega áberandi á laugardögum og því var ákveðið að lengja afgreiðslutímann til kl. 21 á laugardögum í sumar.

"Gestir eru almennt mjög ánægðir með nýju rennibrautirnar og heimsóknum hefur fjölgað. Við höfum til dæmis heyrt fjölmargar sögur um að Akureyri hafi verið valin sem áfangastaður til að leyfa krökkunum að prófa nýju rennibrautirnar. Nýi heiti potturinn hefur slegið algjörlega í gegn og fólk dásamar vatnsnuddið mikið. Ekki má heldur gleyma kalda pottinum sem tekinn var í notkun síðasta haust. Hann nýtur mikilla vinsælda og er mikið notaður," segir Elín.

Áætlað er að ljúka framkvæmdum við sólbaðsaðstöðu og í garði á allra næstu dögum en ýmsar framkvæmdir eru enn á döfinni sem stefnt er að verði að veruleika á árinu. Þar má nefna að gera geymslu fyrir kennslu og æfingagögn ásamt fleiru sem fylgir rekstrinum. Skipta á um lásakerfi í búningsskápum og verða lyklar aflagðir en þess í stað tekin upp pinnúmerakerfi.

"Stefnt er að því að skipta um dúk í gömlu lauginni. Dúkurinn sem nú er í lauginni er orðinn gamall og stökkur og laugin farin að leka tölvert. Því verður ekki hjá þessari framkvæmd komist þótt það verði ekki auðvelt að loka miðju sundlaugasvæðinu en óneitanlega mun það hafa töluverð áhrif á reksturinn á meðan á því stendur. Áætlað er að byrjað verði á verkinu upp úr miðjum ágúst," segir Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugarinnar á Akureyri.

Þess má að lokum geta að komið hefur verið upp 75 tommu skjá við nýju heitu pottana og þar verða flestir fótboltaleikirnir á HM sýndir þar þegar veður og aðstæður leyfa.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan