Opið fyrir umsóknir um styrki vegna Barnamenningarhátíðar 2021

Endurvinnslutröllið á Glerártorgi árið 2020.
Endurvinnslutröllið á Glerártorgi árið 2020.

Barnamenningarhátíð á Akureyri verður haldin í apríl 2021. Hægt er að sækja um styrki vegna verkefna eða viðburða sem tengjast hátíðinni og er umsóknarfrestur til og með 9. desember nk. Leik- og grunnskólar eru sérstaklega hvattir til að sækja um.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að umsóknaraðilar kynni sér vel verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri sem er að finna HÉR.

Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátíð á Akureyri 2021 á barnamenning.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan