Óhjákvæmilegar lokanir gatna á miðbæjarsvæðinu

Vegna vinnu við fráveitukerfi Norðurorku má búast við lokunum á götum sem merktar eru með rauðu á meðfylgjandi mynd. Reynt verður að halda götum opnum að hluta eftir því sem framkvæmdir leyfa.

Framkvæmdir munu standa yfir til næsta miðvikudags, 10. ágúst, en reiknað er með því að göturnar verði að mestu opnar um helgina.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en um nauðsynlega aðgerð er að ræða.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan