Ófærð, samgöngutruflanir og lokanir

Almenningssamgöngur á Akureyri liggja niðri í dag vegna ófærðar. Enn er mjög blint, töluverð úrkoma og lítið skyggni. 

Í þessum aðstæðum miðar snjómoksturinn fyrst og fremst að því að halda helstu stofnbrautum opnum og tengja hverfin. Byrjað er að keyra snjó af stofnbrautum og stærstu götum í þeirri viðleitni að vinna í haginn eins og hægt er í morgundaginn. Stefnt er að því að ryðja inni í hverfum á morgun. Ófært er í bænum fyrir fólksbíla og er vonast til að fólk sé ekki á ferli á götunum að óþörfu. 

Strætisvagnar Akureyrar ganga ekki í dag og sama gildir um ferliþjónustuna. 

Í dag verður lokað í Ráðhúsi, Glerárgötu 26, Rósenborg og Víðilundi. Því miður er færðin þannig að ekki verður mögulegt að koma heimsendum mat til viðskiptavina í dag og einnig er ljóst að röskun verður á heimaþjónustu. Amtsbókasafnið er sömuleiðis lokað í dag. 

Þá eru eftirfarandi íþróttamannvirki Akureyrarbæjar lokuð í dag: Sundlaug Akureyrar, Íþróttamiðstöð Glerárskóla, Íþróttamiðstöð Giljaskóla, Íþróttahús Síðuskóla, Íþróttahús Lundarskóla, Íþróttahús Naustaskóla, Íþróttahöllin, Boginn og Íþróttamiðstöðin í Hrísey.

Eins og áður hafði verið tilkynnt liggur allt skólahald niðri.

Vonast er til að öll þjónusta verði komin í eðlilegt horf á morgun.

Nokkrar myndir sem voru teknar á Akureyri í morgun: 

  

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan