Nýtt íþróttahús vígt

Ingibjörg Ólöf Isaksen, Silja Dögg Baldursdóttir og Ellert Örn Erlingsson íþróttafulltrúi Akureyrarb…
Ingibjörg Ólöf Isaksen, Silja Dögg Baldursdóttir og Ellert Örn Erlingsson íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar.

Íþróttahús Naustaskóla var vígt og formlega tekið í notkun í dag, þriðjudaginn 10. október. Húsið er í alla staði hið glæsilegasta og búið fullkomnum tækjabúnaði.

Það var í ársbyrjun 2006 að undirbúningur hófst fyrir byggingu Naustaskóla og var fyrsti áfangi hans tekinn í notkun fyrir átta árum. Íþróttahúsið var opnað fyrir iðkendum í tveimur áföngum; nemendur Naustaskóla hófu að nota það fyrir ári síðan og núna í haust var húsið opnað að fullu fyrir almenna notkun íþróttafélaga bæjarins.

Ingibjörg Ólöf Isaksen, formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs, flutti stutt ávarp við vígsluna þar sem hún meðal annars þakkaði öllum sem að verkinu komu og sagði að því búnu:

"Ég óska Akureyringum til hamingju með þetta glæsilega íþróttahús. [...] Megi það verða til þess að efla íþróttaiðkun í bænum, stuðla að aukinni hreyfingu og bættri heilsu bæjarbúa, auka metnað unga fólksins og ef til vill færa okkur í fyllingu tímans fleira afreksfólk sem getur fetað í fótspor fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu." Fyrirliðinn Aron Einar er sem kunnugt er Akureyringur.

Ingibjörg afhenti síðan Silju Dögg Baldursdóttur, formanni frístundaráðs, sérstakan vígsluskjöld til marks um að húsið hafi verið formlega tekið í notkun.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan