Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa á Akureyri

Hér má sjá byggingarreitinn norðan við hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð. Mynd: ÖA.
Hér má sjá byggingarreitinn norðan við hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð. Mynd: ÖA.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri hafa undirritað samning um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er um þrír milljarðar króna sem skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Akureyrarbær greiðir 15%. Áætlað er að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2023.

„Ég fagna því mjög að þessi framkvæmd sé komin af stað. Ný hjúkrunarrými við Vestursíðu verða bylting fyrir íbúa sem þurfa á þessari þjónustu að halda," segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri.

Samkvæmt mati heilbrigðisráðuneytisins er skortur á hjúkrunarrýmum á Akureyri og fyrirsjáanlegt að þörf fyrir fleiri rými aukist hratt á næstu árum.

„Það er afskaplega gleðilegt að samstarf ráðuneytisins og Akureyrarbæjar um þetta mikilvæga verkefni liggi nú fyrir skjalfest með samningi. Það er fátt ánægjulegra en að sjá stór skref stigin í átt að aukinni og bættri þjónustu við aldraða. Akureyrarbær hefur sinnt þeim málum afar vel, bæði við aldraða heima og á hjúkrunarheimilum og ég veit að svo mun verða áfram," segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Alútboð eykur hagkvæmni og styttir framkvæmdatíma

Ákveðið hefur verið að ráðast í framkvæmdina á grundvelli alútboðs þar sem reynslan sýnir að sú leið getur stytt framkvæmdatíma og leitt til meiri hagkvæmni, eða allt að 10% lægri stofnkostnað en ef farin væri hefðbundin leið opinberra framkvæmda. Þetta felur í sér að þeir sem vilja vinna verkið bjóða í skilgreinda heildarupphæð þar sem jafnframt liggur fyrir ýtarleg þarfalýsing sem þarf að uppfylla. Teymi bjóðenda sem skipuð eru hönnuðum og verktökum og valin á grundvelli forvals, leggja síðan fram tillögur sem metnar eru innbyrðis út frá gæðum.

Byggt á tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan