Nýtt deiliskipulag Tryggvabrautar og atvinnusvæðis norðan hennar

Tillaga á vinnslustigi kynnt á opnu húsi þriðjudaginn 14. júní.

Akureyrarbær vinnur nú að gerð deiliskipulags fyrir Tryggvabraut og atvinnusvæði norðan hennar í samvinnu við Vegagerðina. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og er markmið skipulagsvinnunnar að útfæra samræmt og heildstætt skipulag fyrir svæðið. Megináhersla er lögð á endurbætur Tryggvabrautar, aukið umferðaröryggi og bættar tengingar gangandi og hjólandi vegfarenda ásamt því að skilgreina byggingarheimildir á atvinnulóðum milli Tryggvabrautar og Glerár.

Deiliskipulagsdrögin má nálgast hér og greinargerð með tillögunni hér . Þá má ennfremur skoða forsendur fyrir vega- og stígahönnun á svæðinu  hér og hér.

Þriðjudaginn 14.júní 2022 voru drög að deiliskipulagi kynnt á opnu húsi í Ráðhúsi Akureyrarbæjar. Þar gátu íbúar skoðað skipulagsgögnin og veggspjöld sem Efla verkfræðistofa útbjó í kynningarskyni. Veggspjöldin má sjá hér og hér.

 

Eru íbúar og aðrir hagsmunaaðilar hvattir til að kynna sér skipulagið og koma ábendingum á framfæri. Skriflegar ábendingar má leggja fram á opnu húsi eða senda bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9 eða á netfangið skipulag@akureyri.is.

Frestur til að koma á framfæri ábendingum við tillöguna er til 15. ágúst 2022.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan