Nýr þjónustukjarni vígður í Klettaborg

Nýr þjónustukjarni fyrir fatlað fólk í Klettaborg var vígður í dag. Þjónustukjarninn er nýtt heimili sex einstaklinga sem þurfa aðstoð við daglegar athafnir. Aðstaða íbúa og starfsfólks gjörbreytist til hins betra.

Það var með mikilli ánægju sem Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, vígði þjónustukjarnann í dag og afhenti Karólínu Gunnarsdóttur, sviðsstjóra búsetusviðs, lyklana að húsinu. Íbúar flytja inn á allra næstu dögum.

„Þetta er sannarlega góður dagur og ánægjulegur. Ég vil óska íbúum, starfsfólki og okkur öllum til hamingju með glæsilegt heimili og langar jafnframt að þakka öllum þeim sem komu að verkinu,“ segir Halla Björk.

Byggingin stendur á nýrri lóð á horni Klettaborgar og Dalsbrautar og er hátt í 600 fermetrar að stærð. Sex íbúðir eru í húsinu, en einnig sameiginleg rými, garður sem nýtist til samveru og starfsmannaaðstaða.

Aðgengi og aðstaða er fyrsta flokks. Hver íbúð samanstendur af svefnherbergi, stofu og samliggjandi eldhúsi, baðherbergi og geymslu inn af forstofu. Sér verönd fylgir öllum íbúðum.

Tilkoma þjónustukjarnans er liður í þeirri stefnu að leggja niður hefðbundin herbergjasambýli en veita þess í stað einstaklingsmiðaða þjónustu með áherslu á sjálfstæða búsetu. Hönnun húsnæðisins tekur mið af því og á að auka persónulegt svigrúm íbúa. „Aðstaða fyrir íbúa og starfsmenn mun gjörbreytast og er mikil eftirvænting hjá öllum með að flytja í nýtt húsnæði,“ segir Kristinn Már Torfason forstöðumaður þjónustukjarnans. 

Hér eru nokkrar myndir frá vígslunni og af þessu nýja og glæsilega húsnæði:

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan