Nýr sviðsstjóri skipulagssviðs

Pétur Ingi Haraldsson.
Pétur Ingi Haraldsson.

Pétur Ingi Haraldsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri skipulagssviðs Akureyrarbæjar. 

Pétur Ingi lauk B.S. prófi í landfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og diplóma í opinberri stjórnssýslu frá sama skóla árið 2016. Einnig hefur hann lokið meistaranámi við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi á sviði skipulagsmála.

Pétur starfar sem skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og sem yfirmaður sameiginlegs embættis skipulags- og byggingarfulltrúa frá 2007. Meðfram þeim störfum hefur hann haldið fjölmörg erindi um skipulagsmál auk þess að hafa kennt við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Þá hefur Pétur sinnt ýmsum verkefnum á vegum sveitarfélaga og tekið þátt í bæði stýrihópum og verkefnahópum um skipulagsmál. Pétur kemur til starfa hjá Akureyrarbæ í byrjun maí.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan