Leiðarvísar fyrir gesti í Hrísey og Grímsey

Ferðamenn í Hrísey
Ferðamenn í Hrísey

Eftir góðar viðtökur á Svalbarða og Grænlandi, hafa sjö bæjarfélög á Íslandi þar með talið Grímsey og Hrísey, þróað staðbundna leiðarvísa til þess að taka á móti gestum.

Samtök leiðangursskipa á norðurslóðum (Association of Arctic Expedition Cruise Operators, skammstafað AECO) aðstoðaði við skipulagningu á vinnustofum um staðbundna leiðarvísa í mars og apríl 2022 á Austur-, Norður- og Suðausturlandi. Samtals voru haldnar fimm vinnutofur á Akranesi, Húsavík, Djúpavogi, Hrísey og Grímsey. Tilgangur vinnustofanna var að setja ferðaþjónustuna á dagskrá og þróa leiðarvísa í samstarfi við heimafólk með staðbundnum leiðbeiningum, upplýsingum og ráðleggingum fyrir gesti. Áður var búið að vinna leiðarvísi fyrir Seyðisfjörð (2019).

Hvernig á að vera tillitsamur gestur

Staðbundnir leiðarvísar veita gestum hjálpleg tilmæli áður en komið er á hvern stað. Þeir innihalda ábendingar um hvert sé best að fara og ráð um hvernig eigi að vera tillitsamur gestur. Meðal annars hvetur leiðarvísirinn gesti til að njóta bæjarins og landslagsins, en láta gróður, dýr og menningararf ósnortna. Gestum er bent á að um að biðja um leyfi áður en þeir taka myndir af bæjarbúum, og að gægjast ekki inn um glugga. Leiðarvísirinn bendir einnig á áhugaverða staði og gönguleiðir.

Elías Bj. Gíslason, Forstöðumaður Gæða- og Þróunarsviðs hjá Ferðamálastofu er afar ánægður með samstarfið við AECO og fagnar komu ferðafólks til Íslands.

„Það mikilvægasta í ferðaþjónustu, líkt og í lífinu sjálfu, er traust. Traust milli bæjarbúa, gesta og fyrirtækja í ferðaþjónustu. Það er því afar mikilvægt fyrir bæjarfélögin að búa til leiðbeiningar fyrir gesti og ferðaþjónustufyrirtæki sem eru vel kynntar. Það er ánægjulegt að sjá þá áherslu og fyrirhöfn sem AECO leggur í að skapa þessar leiðbeiningar fyrir meðlimi sína, til þess að byggja upp traust milli þeirra, gestanna og bæjarbúanna. Það er einmitt þess vegna sem Ferðamálastofa vildi vinna með AECO við að búa til leiðarvísa  í þessu NORA-verkefni sem fjármagnað var af Norrænu ráðherranefndinni.“

Eignarhald bæjarbúa er lykilatriði

Allir þeir leiðarvísar sem búnir voru til á Íslandi voru gerðir af bæjarbúum eftir skapalóni og með aðstoð frá Samtökum leiðangursskipa á norðurslóðum (AECO).

Ilja Leo Lang, verkefnastjóri samfélagsþátttöku hjá AECO, sem hefur unnið að gerð leiðarvísanna segir: "Framtak og þátttaka bæjarbúa við gerð leiðarvísanna er lykillinn að velgengni. Það hefur verið hreint ótrúlegt að verða vitni vinnusemi bæjarbúa í þessu ferli. Ef ég hef lært eitthvað af vinnustofunum þá er það mikilvægi þess að koma fólki saman og skapa rými til þess að ræða ferðaþjónustu, hvað má og hvað má ekki – og að sjá hvernig slíkar umræður skapa betri skilning, meiri þátttöku og eignarhald.“

Gyða Guðmundsdóttir, Sérfræðingur í samfélagsþáttöku hjá AECO, með áherslu á Ísland, segir að útgerðir leiðangursskipa séu að vinna að því að byggja upp góð sambönd við bæjarbúa.

"Það er ánægjulegt að sjá góð samskipti og samvinnu milli bæjarfélaga og fyrirtækja í leiðangurssiglingum. Það er svona sem við tryggjum að leiðangursskipin séu velkomin í dag, og til frambúðar. AECO hefur innleitt margar leiðbeiningar, staðla og verkfæri til þess að tryggja umhverfisvænar, öruggar og tillitssamar leiðangurssiglingar á Íslandi. Þar má nefna rakningu skipa, mat á starfsfólki um borð og eftirlit, auk þess að þróa staðbundna leiðarvísa á Svalbarða, Grænlandi, Kanada og Noregi. Það er frábært að sjá fleiri bæjarfélög á Íslandi taka þetta verkfæri í notkun og gera að sínu. Það er einnig mikilvægt að nefna öll þau bæjarfélög sem þróað hafa leiðarvísa hafa ákveðið að þær séu ekki aðeins fyrir gesti á skemmtiferðaskipum, heldur fyrir allt það ferðafólk sem heimsækir bæinn.“

Hér má sjá leiðarvísana fyrir Grímsey og Hrísey.

Allar staðbundna leiðarvísa og aðrar leiðbeiningar má finna á heimasíðu AECO.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan