Ný rafstöð tekin í notkun í Grímsey

Búnaður rafstöðvarinnar eftir endurnýjun. Mynd RARIK
Búnaður rafstöðvarinnar eftir endurnýjun. Mynd RARIK

Endurbótum á nýrri rafstöð RARIK í Grímsey er lokið og var hún tekin í notkun í lok október. Búnaðurinn var orðinn gamall og farinn að þarfnast endurnýjunar. Nýju vélarnar eru mun lágværari en þær gömlu og hafa íbúar orðið varir við það.

Settar voru upp þrjár nýjar Scania 160 kW díselvélar, að því er fram kemur á vef RARIK, sem hver og ein nægir til að anna orkuþörf í eyjunni. Ef álag eykst ræsir stjórnkerfið aðra vél í samkeyrslu. Þær eru reknar sem sjálfstæðar einingar og er hægt að taka hverja einingu úr notkun ef þörf er á vegna viðhalds. Við val á vélum var tekið mið af eldsneytis- og varmaorkunýtni þeirra. Samhliða var allur raf- og stýribúnaður og stoðkerfi stöðvarinnar endurnýjað í því skyni að gera rafstöð RARIK í Grímsey eins sjálfvirka og framast er kostur og að bæta vöktunar- og fjarstýrimöguleika og auka þar með áreiðanleika.

Þá var sett upp nýtt og fullkomið loftræstikerfi sem tryggir loftskipti í rafstöðvarbyggingunni og dregur úr raka og seltu í innblásturlofti. Varmaorkan frá nýju díselvélunum mun að hluta til nýtast til að hita upp sundlaug Grímseyinga.

EFLA verkfræðistofa var aðalhönnuður og ráðgjafi RARIK við verkið og sá um eftirlit á framkvæmdatímanum. Næsta sumar er áætlað að lagfæra húsnæði stöðvarinnar að utan og ganga frá lóð og frárennslislögnum með olíugildrum og að endurnýja birgðatank. Samkvæmt upplýsingum frá Eflu eru nýju vélarnar mun lágværari en áður og hafa íbúar eyjarinnar orðið áþreifanlega varir við það. Hljóðeinangrun verður þó bætt enn frekar með nýrri framhurð og lagfæringu á klæðningu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan