Ný aksturleið að Hömrum og Kjarnaskógi

Mynd: María H. Tryggvadóttir
Mynd: María H. Tryggvadóttir

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Hagahverfi og hefur Kjarnavegi, hefðbundnu leiðinni úr Naustahverfi í Kjarnaskóg, því verið lokað þess vegna. Þeir sem vilja fara í Kjarnaskóg eða á Hamra er því bent á að fara nýja leið um Naustabraut neðst í Hagahverfi, eða um Eyjafjarðarbraut vestri. Búast má við því að Kjarnavegur verði lokaður fyrir umferð fram á næsta sumar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan