Nú fer hver að verða síðastur...

Frestur til að skila inn umsóknum vegna Listasumars 2018 rennur út miðvikudaginn 28. febrúar nk.

Akureyrarstofa auglýsir eftir áhugaverðum og skemmtilegum hugmyndum að listasmiðjum og viðburðum fyrir Listasumar á Akureyri sem hefst 24. júní og lýkur 24. ágúst.

Alls eru 20 styrkir í boði, samtals 1.000.000 kr.

Styrkjum fylgir afnot af rými í Hofi, Deiglunni eða Rósenborg ásamt aðgangi að kynningarefni Listasumars og tækjabúnaði í ákveðnum rýmum.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um styrkina á íslensku og ensku er að finna á heimasíðunni listasumar.is.

Síðasti skiladagur umsókna er sem áður segir 28. febrúar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan