Notkun á þjónustugáttinni hefur stóraukist

Þjónustugáttin dregur úr þörf fyrir símtöl. Upplýsingar um frístundaframboð fyrir börn og umsóknir u…
Þjónustugáttin dregur úr þörf fyrir símtöl. Upplýsingar um frístundaframboð fyrir börn og umsóknir um frístundastyrki er meðal þess sem hægt er að nálgast í gáttinni.

Alls bárust hátt í 5.900 umsóknir í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar árið 2020. Það eru nærri þrefalt fleiri umsóknir en árið áður.

Möguleikar til notkunar hafa sömuleiðis aukist mikið á undanförnum misserum, enda hefur starfsfólk bæjarins lagt kapp á að koma umsóknum um fjölbreytta þjónustu, styrki, leyfi og fleira á rafrænt form á einn stað.

108 umsóknarform í gáttinni

68 nýjum umsóknarformum var bætt við árin 2019 og 2020 og um síðustu áramót voru þau í heildina 108 talsins.

Umsóknarformin tilheyra öllum sviðum bæjarins. Skipulags- og byggingarmál eru fyrirferðarmikil, en umsóknir um leyfi til dýrahalds fara einnig í gegnum gáttina, svo og umsóknir um fjárhagsaðstoð og leiguhúsnæði á vegum sveitarfélagsins svo aðeins örfá dæmi séu nefnd.

Stefnan að gera enn betur

Varpar þessi þróun ljósi á markmið Akureyrarbæjar um að bæta rafræna þjónustu sveitarfélagsins og að þjónustugáttin sé meginfarvegur fyrir afgreiðslu erinda.

Bæjarráð fjallaði um notkun þjónustugáttar á síðasta fundi og fagnaði þeim árangri sem náðst hefur. Bæjarráð hvatti sömuleiðis stjórnendur bæjarins til að fjölga aðgerðum enn frekar og spara þannig íbúum og fyrirtækjum spor og tíma.

Kíktu inn fyrir gáttina

Þjónustugáttin einskorðast ekki við umsóknir, því þar er einnig hægt að fylgjast með afgreiðslu erinda sinna, nálgast yfirlit reikninga, upplýsingar um frístundaframboð og fleira.

Íbúar og viðskiptavinir sveitarfélagsins eru hvattir til að kynna sér möguleika þjónustugáttar. Ef eitthvað er óljóst eða má betur fara þá er velkomið að senda okkur ábendingu. Það er einmitt hægt að gera í þjónustugáttinni, en líka með því að smella hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan