Niðurstaða bæjarstjórnar vegna breytingar á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að gert verði ráð fyrir iðnaðarsvæði undir dælustöð fráveitu við norð-austurhorn Sjafnargötu og er liður í fráveitulausnum fyrir athafnasvæðið sem rísa mun við Sjafnargötu.

Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 - Dælustöð fráveitu við Sjafnargötu


Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

28. febrúar 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan