Næsti fundur bæjarstjórnar

Mynd: Elva Björk Einarsdóttir
Mynd: Elva Björk Einarsdóttir

Fundur í bæjarstjórn Akureyrar verður á þriðjudaginn 12. desember kl. 16 á 4. hæð í Ráðhúsinu. Fjallað verður m.a. um dagþjálfun á Öldrunarheimili Akureyrar, fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021 og "Í skugga valdsins #metoo". Einnig verður lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan aðalfulltrúa í fræðsluráði, auk þess sem bæjarstjóri flytur skýrslu sína. 

Bæjarstjórnarfundir eru að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Í júlí og ágúst er sumarleyfi bæjarstjórnar og hefur bæjarráð þá heimild til fullnaðarafgreiðslu mála. Fundirnir eru haldnir í bæjarstjórnarsalnum í Geislagötu 9, 4. hæð og hefjast kl. 16. Sjónvarpað er frá fundunum daginn eftir, miðvikudag, kl. 14.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Bein útsending er frá fundunum á heimasíðu Akureyrarbæjar og upptökur frá þeim er einnig hægt að nálgast þar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan