Nær allir bæjarbúar á Akureyri eru ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á

Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Ánægja íbúa Akureyrarbæjar með þjónustu sveitarfélagsins eykst milli ára í 11 af þeim 13 þjónustuþáttum sem Gallup spurði um til að kanna viðhorf íbúa til þjónustu sveitarfélagsins. Í tveimur flokkum er ánægjan jöfn því sem var árið á undan en 92% íbúa Akureyrarbæjar eru samkvæmt könnuninni ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á.

Áhersla á að auka þjónustu við barnafjölskyldur

Niðurstöður könnunarinnar sýna glöggt ákall íbúa sveitarfélagsins um að þjónusta við barnafólk og þjónusta leikskóla verði betri. Sú áhersla íbúa endurspeglast í þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið í fjárhags- og framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar þ.e. uppbygging leikskóla auk aðgerða til að fjölga dagforeldrum og niðurgreiða kostnað við vistun barna hjá dagforeldrum.

Leiðandi í umhverfismálum

Akureyrarbær hefur um langt skeið lagt áherslu á að vera leiðandi sveitarfélag í umhverfismálum og því ánægjulegt að sjá að íbúar Akureyrarbæjar meta árangur sveitarfélagsins góðan ef marka má niðurstöður könnunarinnar. Í öllum þeim spurningum sem lagðar eru fyrir íbúa og varða umhverfismál er Akureyrarbær í einu af þremur efstu sætum þeirra 19 sveitarfélaga sem taka þátt í könnuninni og í fyrsta sæti þegar spurt er um hvernig sveitarfélagið stuðli að umhverfisvænum samgöngum. Akureyrarbær hyggst áfram leggja áherslu á umhverfismál og vill gera sífellt betur í þeim mikilvæga málaflokki.

Könnunin fór fram 7. nóvember 2018 - 2. janúar 2019 á meðal íbúa 19 stærstu sveitarfélaga landsins.

Þjónusta sveitarfélaga 2018 - Akureyri (pdf)

Þjónusta sveitarfélaga 2018 - Umhverfismál - Akureyri (pdf)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan