Munið Barnamenningarhátíðina

Minnt er á að frestur til að sækja um styrki vegna Barnamenningarhátíðar á Akureyri 2020 rennur út á miðnætti í dag, miðvikudaginn 4. desember.

Akureyrarbær veitir styrki vegna viðburða á Barnamenningarhátíð sem fer fram í bænum 21.-26. apríl 2020.

Markmið með stuðningnum er að styrkja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi yfir hátíðina og veita þeim tækifæri til að njóta lista og menningar. Vettvangur hátíðarinnar er Akureyri og leitast er við að nýta spennandi og áhugverð rými þar sem börn geta skapað, notið, sýnt og túlkað. Meginreglan skal vera að ókeypis sé á alla viðburði.

Styrkir eru veittir til einstaklinga, lögaðila, listhópa, fyrirtækja eða stofnana. Tekið skal fram að ekki eru veittir styrkir til hefðbundins stofn- og rekstrarkostnaðar stofnana eða samtaka. Jafnframt eru ekki veittir styrkir til tækjakaupa, útgáfu né stakra ferðastyrkja. Upphæðir verkefnastyrkja geta verið á bilinu 20.000 til 300.000 kr.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur og aðrar mikilvægar upplýsingar á barnamenning.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan