Minningarsýning um Fiske að taka á sig mynd

Unnið hefur verið að því í sumar að setja upp minningarsýningu í flugstöðinni í Grímsey um bandaríska fræðimanninn, og velgjörðarmann Grímseyinga, Daniel Williard Fiske. Hann sigldi til Íslands árið 1879, sá þá Grímsey við ystu sjónarrönd og tók sérlegu ástfóstri við eyjuna.

Jafnvel þótt Fiske hafi aldrei heimsótt Grímsey þá hreifst hann af lífsbaráttu íbúanna og ekki síst er hann heyrði af því hve góðir þeir væru í taflmennsku enda var hann sjálfur mikill áhugamaður um skák.

Fiske sendi í framhaldi Íslandsheimsóknarinnar hverju heimili í Grímsey taflmenn og taflborð. Nokkru síðar sendi hann bókagjöf til Grímseyjar og varð þannig til lítið almenningsbókasafn sem kallað var Eyjarbókasafnið. Þar að auki lét Fiske sérsmíða og flytja út í eyju tvo skápa með áletrunum utan um bókasafnið. Þessir bókaskápar eru varðveittir í Grímsey og geyma rúmlega tvö hundruð bækur sem unnið er að skráningu á, en nokkrar þeirra er hægt að berja augum á sýningunni ásamt öðrum munum, myndum og textum sem varpa ljósi á sögu Fiske og áhugaverð tengsl hans við Grímsey.

Í vor var biðlað til þeirra sem þekkja til að aðstoða við leit að safnkostum, svo sem taflmönnum og taflborðum sem Fiske sendi Grímseyingum á sínum tíma. Nokkrir taflmenn hafa komið í leitirnar en svo virðist sem aðeins eitt taflborð hafi varðveist og er það til sýnis á minningarsýningunni.

Sigríður Örvarsdóttir safnafræðingur og hönnuður hefur sýrt verkefninu fyrir hönd Akureyrarstofu. Uppsetningu sýningarinnar er að mestu lokið og eru gestir og gangandi hvattir til að líta inn í flugstöðina og skoða. Grímseyingar halda minningu velgjörðarmannsins Williard Fiske á lofti og er ætíð haldið upp á fæðingardag hans, 11. nóvember, og því hefur verið ákveðið að opna minningarsýninguna formlega þann dag. 

Hér eru nokkrar myndir af sýningunni:

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan