Mikilvægt að halda áfram að flokka

Margir eru þessa dagana meira heima hjá sér en venjulega og sinna jafnvel fjarvinnu að heiman vegna samkomubanns og aðstæðna í þjóðfélaginu.

Af þessu leiðir að búast má við auknu magni af sorpi frá heimilum. Þess vegna eru íbúar hvattir sem aldrei fyrr til að flokka eins mikið og hægt er og forðast þannig yfirfullar tunnur.

Vegna smithættu er starfsmönnum í sorphirðu bannað að hirða lausa poka við tunnur og því þarf að huga að því að losa sorp með öðrum hætti ef þær fyllast. Mikilvægt er að draga eins og mögulegt er úr almennu heimilissorpi, koma flokkuðu sorpi á grenndarstöð og eftir atvikum á gámasvæði.

Hjálpumst að og förum rétta leið!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan