Miðbær, Drottningarbrautarreitur - Hafnarstræti 73 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið sem breytingum tekur nær til lóðar nr. 73 við Hafnarstræti. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir hækkun húss um eina hæð og hækkun nýtingarhlutfalls.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar, frá 19. september 2018 til 24. október 2018 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér að neðan:

Uppdráttur

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 24. október 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
19. september 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan